Hringja símtal
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem er vistað á tengiliðaspjaldinu í
Tengiliðir
. Til að hlusta á raddmerki skaltu
opna tengiliðaspjald og velja
Valkostir
>
Spila
.
1. Ýttu á og haltu inni raddtakkanum til að hringja símtal með raddskipun.
2. Þegar þú heyrir tóninn eða sérð merki á skjánum skaltu bera skýrt fram nafnið sem vistað er á tengiliðaspjaldinu.
3. Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því tungumáli sem er valið og birtir nafnið og símanúmerið. Eftir 1,5 sekúndu
hringir tækið í númerið. Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja
Næsta
til að skoða aðrar niðurstöður í lista eða
Hætta
til
að hætta við raddstýrða hringingu.
Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur tækið fyrsta
númerið í eftirfarandi röð:
Farsími
,
Farsími (heima)
,
Farsími (vinna)
,
Sími
,
Sími (heima)
og
Sími (vinna)
.