Nokia E50 - Valkostir í símtali

background image

Valkostir í símtali

Veldu

Valkostir

til að velja úr eftirfarandi meðan á símtali stendur:

Hljóðnemi af

— Til að hlusta á símtalið sem stendur yfir án þess að aðrir þátttakendur í símtalinu geti heyrt í þér.

Hljóðnemi á

— Til að aðrir þátttakendur í símtalinu geti heyrt í þér aftur.

Sleppa

— Til að sleppa aðila úr símtalinu sem stendur yfir.

Slíta símtali í gangi

— Til að slíta símtalinu.

Valmynd

— Til að sjá lista yfir forrit tækisins.

Í bið

— Til að setja símtalið í bið.

Úr bið

— Til að taka símtalið úr bið.

Ný hringing

— Til að hringja nýtt símtal meðan á símtali stendur, ef símafundir (sérþjónusta) standa til boða.

Svara

— Til að svara símtali meðan annað símtali stendur yfir, ef

Símtal í bið

er virkt.

Hafna

— Til að hafna hringingu meðan á símtali stendur, ef

Símtal í bið

er virkt.

Læsa tökkum

— Til að læsa takkaborði tækisins meðan á símtali stendur.

Símafundur

— Til að sameina símtal sem er í gangi og annað sem er í bið í símafund (sérþjónusta).

Einkamál

— Til að ræða einslega við einn þátttakanda símafundar meðan á fundi stendur (sérþjónusta).

Copyright © 2006 Nokia. All Rights Reserved.

21

background image

Víxla

— Til að skipta á milli símtals sem er í gangi og annars sem er í bið (sérþjónusta).

Senda DTMF-tóna

— Til að senda DTMF-tónaraðir (dual tone multi-frequency), t.d. fyrir lykilorð. Sláðu inn DTMF-strenginn eða

leitaðu að honum í

Tengiliðir

og veldu

DTMF-tónar

.

Færa

— Tengdu saman viðmælanda sem er rætt við og þann sem er í bið og rjúfðu tengingu þína í leiðinni (sérþjónusta).

Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.