Nokia E50 - Skilaboð

background image

Skilaboð

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

.

Áður en þú getur sent eða tekið á móti skilaboðum gætir þú þurft að gera eftirfarandi:
• Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan þjónustusvæðis.
• Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð skilaboða sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir þau á SIM-kortinu.
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað (IAP) í tækinu.

Sjá „Aðgangsstaðir“, bls. 70.

• Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.

Sjá „Stillingar pósthólfa“, bls. 41.

• Færa inn stillingar fyrir SMS í tækinu.

Sjá „Stillingar textaboða“, bls. 36.

• Færa inn stillingar fyrir MMS í tækinu.

Sjá „Still. margmiðlunarskilaboða“, bls. 38.

Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins og færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef svo er ekki

gætir þú þurft að færa stillingarnar inn handvirkt eða leita til þjónustuaðila, símafyrirtækisins eða netveitunnar.

Skilaboð

birtir lista yfir allar gerðir mappa með skilaboðum, þar sem nýjustu skilaboðin eru alltaf efst í hverri möppu.

Veldu eitthvað af eftirfarandi:

Ný skilaboð

— Til að búa til og senda textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð eða tölvupóst.

Innhólf

— Til að skoða öll móttekin skilaboð nema tölvupóst og skilaboð frá endurvarpa.

Mínar möppur

— Til að búa til eigin möppur fyrir skilaboð og sniðmát.

Pósthólf

— Til að lesa og svara tölvupósti.

Uppköst

— Til að vista ósend skilaboð.

Sendir hlutir

— Til að vista send skilaboð.

Úthólf

— Til að skoða skilaboð sem bíða sendingar.

Tilkynningar

— Til að sjá upplýsingar um skil á sendum skilaboðum.