Nokia E50 - Tölvupóstur

background image

Tölvupóstur

Til að geta tekið á móti og sent tölvupóst verður þú að vera með ytri pósthólfsþjónustu. Þessi þjónusta er í boði hjá

netþjónustuveitum, kerfisþjónustuveitum eða símafyrirtækinu þínu. Tækið þitt uppfyllir netstaðlana SMTP, IMAP4 (revision 1)

og POP3, sem og hinar ýmsu lausnir fyrir WAP-tölvupóst. Aðrar tölvupóstþjónustur kunna að bjóða upp á aðrar stillingar eða

valkosti en þá sem lýst er í þessari handbók. Hafðu samband við tölvupóstþjónustuna þína til að fá frekari upplýsingar.
Áður en þú getur sent, tekið á móti, sótt, svarað eða framsent tölvupóst í tækinu þarftu einnig að gera eftirfarandi:
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað (IAP).

Sjá „Aðgangsstaðir“, bls. 70.

• Setja upp pósthólf og færa inn réttar stillingar fyrir tölvupóst.

Sjá „Stillingar pósthólfa“, bls. 41.

Það gerirðu með því að fara eftir leiðbeiningunum frá ytra pósthólfinu þínu og netþjónustuveitum. Hafðu samband við kerfis-

og netþjónustuveitur eða símafyrirtækið til að fá réttar stillingar.