
Stillingar pósthólfa
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Tölvupóstur
.
Mismunandi getur verið hvaða stillingar eru í boði. Sumar stillingar kunna að vera forstilltar af þjónustuveitunni.
Ef þú reynir að breyta stillingum pósthólfs en ekkert pósthólf hefur verið sett upp opnast leiðsagnarforrit sem leiðir þig í gegnum
uppsetningu á pósthólfi.
Stillingar fyrir móttekinn tölvupóst
Veldu
Móttekinn póstur
og svo einhverja af eftirfarandi stillingum:
•
Notandanafn
— Sláðu inn notandanafn fyrir tölvupóstþjónustuna.
•
Lykilorð
— Sláðu inn lykilorð fyrir tölvupóstþjónustuna.
•
Miðlari fyrir innpóst
— Sláðu inn IP-tölu eða heiti miðlarans sem tekur við tölvupóstinum þínum.
•
Aðg.staður í notkun
— Veldu internetaðgangsstaðinn sem tækið notar til að sækja tölvupóst.
•
Sjálfgefið pósthólf
— Færðu inn heiti fyrir pósthólfið.
•
Tegund pósthólfs
— Veldu samskiptareglur fyrir tölvupóst sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með. Valkostirnir eru
POP3
og
IMAP4
. Þessa stillingu er aðeins hægt að velja einu sinni og ekki er hægt að breyta henni eftir að hún hefur verið
vistuð eða stillingum pósthólfs hefur verið lokað. Ef þú notar POP3-samskiptareglur er tölvupóstur ekki uppfærður sjálfkrafa
þegar tækið er tengt við netið. Til að sjá nýjasta tölvupóstinn þarf að aftengjast við pósthólfið og tengjast aftur við það.
•
Öryggi (gáttir)
— Veldu öryggisvalkostinn sem er notaður til að tryggja öryggi tengingarinnar.
•
Gátt
— Veldu gátt fyrir tenginguna.
•
Örugg APOP-innskr.
(aðeins fyrir POP3) — Notaðu POP3-samskiptareglur til að dulkóða sendingu lykilorða til ytri
tölvupóstþjóns meðan tengst er við pósthólfið.
Stillingar fyrir sendan tölvupóst
Veldu
Sendur póstur
og svo einhverja af eftirfarandi stillingum:
•
Tölvupóstfangið mitt
— Sláðu inn tölvupóstfangið sem þjónustuveitan lét þér í té. Öll svör við skeytunum þínum eru send á
það tölvupóstfang.
•
Notandanafn
— Sláðu inn notandanafn fyrir tölvupóstþjónustuna.
•
Lykilorð
— Sláðu inn lykilorð fyrir tölvupóstþjónustuna.
•
Miðlari fyrir útpóst
— Sláðu inn IP-tölu eða heiti póstþjónsins sem sendir tölvupóstinn þinn. Verið getur að þú getir eingöngu
notað þjón símafyrirtækisins þíns fyrir útsendan póst. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.
•
Aðg.staður í notkun
— Veldu internetaðgangsstaðinn sem tækið notar til að senda tölvupóst.
•
Öryggi (gáttir)
— Veldu öryggisvalkostinn sem nota á til að tryggja öryggi tengingarinnar við ytra pósthólfið.
•
Gátt
— Veldu gátt fyrir tenginguna.