
Minniskort
.
Hægt er að sjá hversu mikið minni er í notkun, hversu mikið minni er laust og hversu mikið minni hver tegund gagna notar. Til
dæmis getur þú séð hversu mikið minni er notað fyrir tölvupóst, textaskjöl eða stefnumót í dagbók.
Ábending: Til að tryggja að minnið verði aldrei af skornum skammti ættir þú reglulega að eyða gögnum eða flytja þau
yfir á minniskort eða tölvu.
Minniskort
Nokia tækið þitt styður aðeins FAT16- og FAT32-skráakerfið fyrir minniskort. Ef þú notar minniskort úr öðru tæki, eða ef þú vilt
tryggja samhæfni minniskortsins við Nokia tækið þitt, þarftu e.t.v. að forsníða minniskortið með Nokia tækinu þínu. Öllum
gögnum á minniskortinu er þó eytt varanlega þegar þú forsníður það.
Ráðlegt er að búa reglulega til öryggisafrit af gögnum í minni tækisins og vista það á minniskortinu. Hægt er að flytja
upplýsingarnar yfir í tækið síðar. Til þess að vista öryggisafrit af gögnum úr minni tækisins á minniskorti velurðu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Minniskort
>
Valkostir
>
Afrita minni símans
Til þess að flytja upplýsingar af minniskorti yfir í minni símans velurðu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Minniskort
>
Valkostir
>
Endurh. frá korti
.
Taktu minniskortið ekki úr tækinu meðan það er í notkun. Ef kortið er fjarlægt í miðri aðgerð getur það valdið skemmdum á
minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta skemmst.
Ef ekki er hægt að nota minniskort í tækinu getur verið að það sé af rangri gerð, ekki forsniðið fyrir tækið eða skráakerfi þess
skemmt.
T æ k i ð þ i t t
Copyright © 2006 Nokia. All Rights Reserved.
18

Ábending: Hægt er að setja minniskort í tækið eða taka það úr án þess að fjarlægja þurfi rafhlöðuna eða slökkva á
tækinu.