
Tökkunum læst
Þegar takkalásinn er á getur samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Læstu tökkunum til að koma í veg fyrir að eitthvað gerist þegar ýtt er óvart á takka tækisins.
Þegar tækið er í biðstöðu er tökkunum læst með því að ýta á vinstri valtakkann og svo á *. Takkarnir eru
opnaðir aftur með því að ýta á vinstri valtakkann og svo aftur á *.
Ábending: Til að læsa tökkunum í
Valmynd
eða opnu forriti skaltu ýta snöggt á rofann og velja
Læsa tökkum
. Takkarnir eru opnaðir aftur með því að ýta á vinstri valtakkann og svo á *.
Einnig er hægt að læsa tækinu í biðstöðu með læsingarnúmerinu. Ýttu á rofann, veldu
Læsa síma
og sláðu
inn læsingarnúmerið. Sjálfgefna læsingarnúmerið er 12345. Til að opna tækið ýtirðu á vinstri valtakkann,
slærð inn læsingarnúmerið og ýtir á stýripinnann.