Nokia E50 - Pakkagögn

background image

Pakkagögn

GPRS (general packet radio service) gerir farsímum kleift að tengjast gagnanetum með þráðlausri tengingu (sérþjónusta). GPRS

notast við pakkagagnatækni þar sem upplýsingar eru sendar í stuttum gagnakippum um farsímakerfið. Kosturinn við að senda

gögn í pökkum er að símkerfið er aðeins upptekið þegar gögn eru send eða móttekin. Þar sem GPRS notar símkerfið með

skilvirkum hætti er fljótlegt að koma á gagnatengingum og flutningshraðinn er mikill.
Þú verður að vera í áskrift að GPRS-þjónustunni. Þjónustuveitan eða símafyrirtækið veitir nánari upplýsingar um framboð og

áskrift að GPRS.
EGPRS (Enhanced GPRS) er svipað GPRS en býður upp á enn hraðari tengingu. Þjónustuveitan eða símafyrirtækið veitir nánari

upplýsingar um framboð og áskrift að EGPRS og flutningshraða. Athugaðu að ef þú velur GPRS sem gagnaflutningamáta notar

tækið EGPRS í stað GPRS ef símkerfið býður upp á það.
Meðan á símtali venjulegu stendur er ekki hægt að koma á GPRS-tengingu og allar virkar GPRS-tengingar eru settar í bið, nema

að símkerfið styðji tvöfaldan gagnaflutning.