Nokia E50 - Innrautt

background image

Innrautt

Ekki má beina innrauðum geisla að augum eða láta hann trufla önnur innrauð tæki. Þetta tæki er leysitæki í flokki 1 (Class 1

laser product).
Innrauð tenging er notuð til að tengja saman tvö tæki og flytja gögn á milli þeirra. Hægt er að flytja gögn eins og nafnspjöld,

dagbókaratriði og skrár milli samhæfra tækja um innrauða tengingu.
Gögn send og móttekin
1. Gakktu úr skugga um að innrauð tengi tækjanna snúi hvort að öðru. Staðsetning tækjanna er mikilvægari en hornið eða

fjarlægðin á milli þeirra.

2. Veldu

Valmynd

>

Tenging

>

Innrauð

og ýttu á stýripinnann til að kveikja á innrauðu tengi tækisins. Kveiktu á innrauðu tengi

hins tækisins.

3. Bíddu í nokkrar sekúndur þar til innrauðu tengingunni hefur verið komið á.
4. Til að senda skrá skaltu leita að henni í forriti eða skráastjóranum og velja

Valkostir

>

Senda

>

Með IR

.

Ef gagnasending hefst ekki innan mínútu eftir að kveikt hefur verið á innrauða tenginu er slökkt á tengingunni.
Allir hlutir sem eru mótteknir um innrautt tengi eru fluttir í innhólfsmöppuna í

Skilaboð

.

Þegar tækin eru of langt frá hvoru öðru rofnar tengingin á milli þeirra. Þegar það gerist lýsir innrauði geislinn áfram á tækinu

þínu þar til slökkt er á tengingunni.