Nokia E50 - Uppsetning netaðgangsstaðar fyrir pakkagögn (GPRS)

background image

Uppsetning netaðgangsstaðar fyrir pakkagögn (GPRS)

1. Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

>

Aðgangsstaðir

.

2. Veldu

Valkostir

>

Nýr aðgangsstaður

. Til að nota eldri aðgangsstað sem fyrirmynd að nýjum skaltu velja

Nota gildandi

stillingar

. Til að byrja með tóman aðgangsstað velurðu

Nota sjálfv. stillingar

.

3. Færðu inn eftirfarandi stillingar:

Nafn tengingar

— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir tenginguna.

Flutningsmáti

— Veldu

Pakkagögn

.

Nafn aðgangsstaðar

— Sláðu inn heiti fyrir aðgangsstaðinn. Þjónustuveitan eða símafyrirtækið lætur heitið yfirleitt í té.

Notandanafn

— Sláðu inn notendanafn ef þjónustuveitan krefst þess. Í notandanöfnunum sem þjónustuveitan lætur þér

í té er yfirleitt gerður greinarmunur á há- og lágstöfum.

Biðja um lykilorð

— Veldu

til að slá inn lykilorðið þitt í hvert sinn sem þú skráir þig inn á miðlara, eða

Nei

til að vista

lykilorðið í minni tækisins og gera innskráningu sjálfvirka.

Lykilorð

— Sláðu inn lykilorðið ef þjónustuveitan krefst þess. Þjónustuveitan lætur lykilorðið yfirleitt í té og er þar gerður

greinarmunur og há- og lágstöfum.

Aðgangskort

— Veldu

Öruggt

til að senda alltaf dulkóðað lykilorð, eða

Venjulegt

til að senda dulkóðað lykilorð þegar það

er mögulegt.

Heimasíða

— Sláðu inn vefslóð síðunnar sem þú vilt birta sem heimasíðu þegar þú notar þennan aðgangsstað.

4. Þegar stillingarnar hafa verið færðar inn skaltu velja

Valkostir

>

Frekari stillingar

til að færa inn frekari stillingar eða

Til

baka

til að vista stillingarnar og loka.