
Tengistillingar samstillingar
Til að tilgreina tengistillingar fyrir nýtt snið velurðu
Nýtt samstillingarsnið
>
Tengistillingar
og einhvern eftirfarandi valkosta:
•
Útgáfa miðlara
— Veldu þá SyncML-útgáfu sem hægt er að nota með miðlaranum.
•
Auðkenni miðlara
— Sláðu inn auðkenni miðlarans. Aðeins er hægt að velja þessa stillingu ef útgáfa 1.2 af SyncML er valin.
•
Gagnaflutningsmáti
— Veldu gagnaflutningsmátann sem er notaður til að tengjast við ytri gagnagrunninn við samstillingu.
T e n g i n g a r
Copyright © 2006 Nokia. All Rights Reserved.
58

•
Aðgangsstaður
— Veldu aðgangsstaðinn sem á að nota með samstillingartengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú
getur einnig valið að vera beðin/n um aðgangsstað í hvert sinn sem þú hefur samstillingu.
•
Heimanetfang
— Sláðu inn veffang miðlarans sem hefur að geyma gagnagrunninn sem samstilla á tækið við.
•
Gátt
— Sláðu inn gáttarnúmer miðlarans með gagnagrunninum.
•
Notandanafn
— Sláðu inn notandanafn til að miðlarinn beri kennsl á tækið.
•
Lykilorð
— Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn beri kennsl á tækið.
•
Leyfa samst.beiðnir
— Veldu
Já
til að leyfa að samstillingin hefjist frá miðlaranum með gagnagrunninum.
•
Samþyk. allar beiðnir
— Veldu
Nei
ef þú vilt að tækið biðji um staðfestingu áður en samstilling við miðlara er samþykkt.
•
Sannvottun símkerfis
— Veldu
Já
ef sannvotta á tækið gagnvart netkerfinu áður en samstilling hefst. Sláðu inn notandanafn
þitt og lykilorð fyrir netkerfið.