Val á stillingum fyrir samstillingu á Dagbók
Til að velja stillingar fyrir samstillingu á
Dagbók
skaltu fletta að viðkomandi sniði, velja
Valkostir
>
Breyta samst.sniði
>
Forrit
>
Dagbók
>
Breyta
og svo einhvern eftirfarandi valkosta:
•
Innifalið í samstillingu
— Veldu hvort samstilla eigi dagbókina með þessu samstillingarsniði.
•
Ytri gagnagrunnur
— Sláðu inn slóðina á gagnagrunninn sem þú samstillir dagbókina við.
•
Staðbundinn grunnur
— Ef fleiri en ein dagbók er í tækinu skaltu velja þá sem á að samstilla með þessu sniði.
•
Gerð samstillingar
— Veldu í hvaða átt á að samstilla. Veldu
Venjuleg
til þess að samstilla gögn úr tækinu við ytri
gagnagrunninn og til baka,
Aðeins til síma
til þess að samstilla gögn úr ytri gagnagrunninum við tækið, eða
Aðeins til
miðlara
til þess að samstilla gögn úr tækinu við ytri gagnagrunninn.