Nokia E50 - VPN fyrir farsíma

background image

VPN fyrir farsíma

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

>

VPN

.

Nokia VPN-netforrit fyrir farsíma (virtual private network) kemur á öruggri tengingu við samhæft innra net fyrirtækis og

þjónustu, eins og tölvupóst. Tækið þitt tengist internetinu með farsímakerfinu og tengist þannig VPN-gátt sem veitir aðgang

að samhæfu innra neti fyrirtækisins. VPN-forritið notar IPSec-tækni (IP Security). IPSec er rammi opinna staðla til að tryggja

örugg gagnaskipti yfir IP-net.
VPN-stefnur skilgreina aðferðina sem VPN-forritið og VPN-gáttin nota til að sannvotta hvort annað, og dulkóðunaralgrímin sem

þau nota til að tryggja leynda gagnanna. Fáðu frekari upplýsingar um VPN-stefnu hjá fyrirtækinu þínu.
Til að nota VPN með forriti þarf að tengja forritið við VPN-aðgangsstað. VPN-aðgangsstaður samanstendur af

internetaðgangsstað og VPN-stefnu.