Nokia E50 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda

tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar

skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

• Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess geta

skemmst.

• Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða

brætt sum plastefni.

• Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og hann

getur skemmt rafrásaspjöld.

• Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan

búnað.

• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
• Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur, líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.
• Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða

viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

• Nota skal hleðslutæki innandyra.
• Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er geyma, líkt og tengiliðum og dagbókaratriðum, áður en tækið er sent

til þjónustuaðila.

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal

fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.

Copyright © 2006 Nokia. All Rights Reserved.

83