Nokia E50 - Leiðarmerki

background image

Leiðarmerki

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Leiðarmerki

.

Leiðarmerki eru staðsetningarhnit sem hægt er að vista í tækinu og nota síðar fyrir aðrar þjónustur sem byggjast á staðsetningu.

Hægt er að búa til leiðarmerki með Bluetooth GPS aukabúnaði eða símkerfinu (sérþjónusta).

Sjá „Leiðsögn“, bls. 74.

Leiðarmerki er búið til með því að velja

Valkostir

>

Nýtt leiðarmerki

. Veldu

Núverandi staðsetning

til að fá upplýsingar frá símkerfi

um lengdar- og breiddargráðu fyrir núverandi staðsetningu, eða

Færa inn handvirkt

til að færa inn nauðsynlegar upplýsingar

um staðsetningu, s.s. heiti, flokk, slóð, breiddargráðu, lengdargráðu og hæð.
Til að skoða eða breyta leiðarmerki skaltu velja það og ýta á stýripinnann.
Til að eyða leiðarmerki skaltu velja það og ýta á hreinsitakkann.
Fyrir hvert leiðarmerki skaltu velja

Valkostir

og svo einhvern eftirfarandi valkosta:

Bæta við flokk

— til að setja leiðarmerkið í hóp með svipuðum leiðarmerkjum. Veldu flokkinn og ýttu á stýripinnann. Flett er

til hægri eða vinstri til að skoða leiðarmerkjaflokka.

Senda

— til að senda leiðarmerkið til samhæfra tækja.

Breyta flokkum

— til þess að bæta við, breyta eða eyða leiðarmerkjaflokkum.

Teikn leiðarmerkis

— til þess að breyta tákni leiðarmerkisins. Veldu táknið og ýttu á stýripinnann.