
Hugbúnaður skoðaður og fjarlægður
Hægt er að skoða upplýsingar um uppsett forrit og fjarlægja þau úr tækinu.
Til að skoða upplýsingar um uppsettan hugbúnaðarpakka skaltu velja forritið og
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
.
Til að fjarlægja hugbúnað opnarðu aðalskjá stjórnanda forrita og velur
Valkostir
>
Fjarlægja
.
Þegar hugbúnaður er fjarlægður er aðeins hægt að setja hann upp aftur með því að nota upprunalegu hugbúnaðarskrána eða
með því að setja upp afrit sem inniheldur allan hugbúnaðarpakkann sem hefur verið fjarlægður. Ef hugbúnaðarpakka er eytt
er ekki víst að hægt sé að opna skrár sem voru búnar til með honum. Ef annar hugbúnaðarpakki þarf á hugbúnaðarpakkanum
sem var fjarlægður að halda getur sá hugbúnaður hætt að virka. Nánari upplýsingar er að finna í þeim leiðbeiningum sem fylgja
með hugbúnaðarpökkum.